
DJÚPAVOGSSKÓLI
Fréttir úr skólastarfi
OKTÓBER
- 14.október - Heimsmarkmiðasmiðjur Bootcamp/unglingastig-nánar auglýst síðar.
- 19.október - Skipulagsdagur starfsmanna, frí hjá nemendum.
- 20.október - Samskiptadagur, nemendur mæta með foreldrum í viðtal hjá umsjónarkennara og setja sér markmið.
- 21.-22.október - keppnisdagar, hér ætlum við að endurvekja gömlu keppnisdagana okkar með nýjum sniði.
- 25.-26.október - VETRARFRÍ :)
NÆSTA VIKA
Mánudagur
- Fyrirlestur fyrir unglinga.
- Sjáumst hress og kát.
Þriðjudagur
- 14:40 Starfsmannafundur (gæti haft áhrif á viðveruna).
Miðvikudagur
- Góður dagur fyrir auka-lestur.
Fimmtudagur
- Obba á námsstefnu skólastjóra á Akureyri.
- Fagfundur
Föstudagur
- Obba á námsstefnu skólastjóra á Akureyri.
- Förum hress inn í helgina.
MATSEÐILL Í NÆSTU VIKU
CITTASLOW SUNNUDAGUR
Cittaslow sunnudagur var haldinn hátíðlegur í síðustu viku. Þar mátti m.a. kynna sér skólastarf í Cittaslow skóla.
Þar mátti m.a. sjá óróa sem nemendur á miðstigi gerðu. Þar voru óskir til jarðarinnar skrifaðar á blað og hengdar á óróann. Flott verkefni hjá þeim.
FRÁ FUNDI FORELDRAFÉLAGSINS
Ársfundur foreldrafélagsins var haldinn á fimmtudaginn. Rétt áður en fundurinn hófst fór rafmagnið af í Djúpavogshreppi. Það var því kertaljós og kósý stemming til að byrja með en þegar leið á fundinn kom rafmagnið aftur og hægt að tengja tölvu við skjávarpa eins og gert er á nútímafundum.
Kertaljósastemmingin stóð samt alveg fyrir sínu :)
ÞEMAVERKEFNI Á MIÐSTIGI
Á miðstigi stendur yfir skemmtilegt þemaverkefni um sólkerfið. Verkefnið er samþætt milli námsgreina en hér má sjá nemendur vinna hjá Hildi í listgreinum.