![page background](https://cdn.smore.com/u/backgrounds/custom_bg-5fca4f8943c8a79d4e6ceb45-8a3d65d63336.jpg)
Grunnskóli Hornafjarðar
8. desember 2020
Fréttir af Covid-19 málum í skólanum
Þrátt fyrir nokkuð stífar sóttvarnarreglur í samfélaginu hefur skólastarf gengið vel og bæði nemendur og starfsmenn tekið þeim takmörkunum sem verið hafa með stóískri ró. Það er fyrst og fremt grímuskyldan í 8. - 10. bekk og hjá starfsmönnum auk matartímans hjá 5. - 10. bekk sem hefur þrengt að en það er lítið mál að leggja slíkt á sig til að vera öruggari gagnvart Covid.
Frá og með morgundeginum 9. des verður opnað fyrir mat hjá 5. og 6. bekk og vonandi getur Heppuskóli mætt í mat fljótlega eftir áramót. Frá og með fimmtudegi 10. desember fellur grímuskylda og 2 metra reglan niður hjá nemendum í 8. - 10. bekk.
Það styttist í jólin sem við viljum öll halda með fjölskyldunni laus við að sóttkví eða einangrun. Því leggjum við áherslu á að vanda okkur síðustu dagana fyrir jólafrí og passa vel upp á persónulegar smitvarnir.
Við erum öll almannavarnir
Lykiltölur í lífi barna. febrúar 2020 og október 2020
Samanburður á lykiltölum í lífi barna frá því í febrúar 2020 og október 2020. Tölurnar eru unnar upp úr könnun frá Rannsókn og greiningu en hér eru kannanirnar í heild sinni https://gs.hornafjordur.is/stefna-og-aaetlun/sjalfsmat/ytramat/.
Foreldrahlutverkið og staða barna á tímum Covid
Á þessum upplýsingafundi verður farið yfir niðurstöður könnunar sem Rannsókn og greining gerði í október á líðan og hegðun barna í 8. - 10. bekk og rætt um hvað foreldrar gætu gert til að koma til móts við þarfir barna sinna.
Niðurstöður skólaþings
19. nóvember síðastliðinn var haldið skólaþing í Grunnskóla Hornafjarðar. Umfjöllunarefnið að þessu sinni var Covid-19 og bar skipulag þingsins þess vitni. Hver bekkur vann í sinni stofu, ýmist í hópum eða allur bekkurinn saman.
Grunnskóli Hornafjarðar
Email: stjorngh@hornafjordur.is
Website: gs.hornafjordur.is
Location: Við Svalbarð og Víkurbraut
Phone: 4708400
Facebook: https://www.facebook.com/GrunnskoliHornafjardar