fb-pixel
autorenew Loading...
Oops... looks like something went wrong.
Click here to try again

Fréttabréf Lundarskóla

Nóvember 2023

Fréttabréf Lundarskóla Nóvember 2023

Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í Lundarskóla.

Tíminn líður hratt og nóvembermánuður að ganga í garð. Það er margt framundan hjá okkur í skólanum og þá má sérstaklega nefna þemadagana sem verða hjá okkur nú í vikunni. Einnig verða viðtalsdagar í mánuðinum, starfsdagur og jólaundirbúningur í lok mánaðar. Hér neðar má sjá nánari upplýsingar í tengslum við þessa daga og fl.

zoom_out_map

Þemadagar – foreldrum boðið í heimsókn í skólann föstudaginn 3. nóvember

Núna á miðvikudag, fimmtudag og föstudag verða þemadagar í Lundarskóla. Þessir dagar eru tileinkaðir Astrid Lindgren og þá vinna allir nemendur að verkefnum sem tengjast þemanu.


Matartímar á þemadögum verða með öðru sniði en venjulega og skóladegi lýkur í sumum árgöngum á öðrum tíma en venjulega. Skipulagið er eftirfarand:


  • Klukkan 11:15 – 12:15 fara nemendur í 4. – 6. bekk í mat og skóladegi lýkur kl. 13:15 (4. bekkur kl. 13:05).
  • Klukkan 11:45 – 12:15 fara nemendur í 7. – 10. bekk í mat og skóladegi lýkur kl. 13:10 (ekkert innanskólaval kennt en nemendur sækja utanskólavalgreinar).
  • Klukkan 12:20 – 12:50 fara nemendur í 1. – 3. bekk í mat og skóladegi lýkur á venjulegum tíma og Frístund starfar eins og venjulega.


Á föstudaginn næsta þann 3. nóvember verðum við með opið hús þar sem foreldrum/forráða-mönnum gefst tækifæri til að koma í skólann, skoða verk nemenda og upplifa skólabraginn á eftirfarandi tímum:


  • Klukkan 11:30 – 12:30 opið hús fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 4. – 10. bekk.
  • Klukkan 11:00 – 12:00 opið hús fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 1. – 3. bekk.


Við hlökkum til að sjá ykkur öll.

Skipulagsdagur þriðjudaginn 7. nóvember

Þann 7. nóvember verður skipulagsdagur og þá mæta nemendur ekki í skólann. Þessi dagur er frídagur hjá nemendum en starfsfólk skólans undirbýr sig fyrir foreldraviðtöl og fl.

Frístund verður opin fyrir þá nemendur sem eru skráðir í hana.

zoom_out_map

Viðtalsdagur 15. nóvember

Nemenda- og foreldraviðtöl verða miðvikudaginn 15. nóvember og þá er gert ráð fyrir að foreldrar mæti með börnum sínum í viðtölin. Ef foreldrar óska eftir að hafa viðtölin rafræn þurfa þeir að hafa samband við umsjónarkennara með það.

Bókun í viðtöl fer fram í gegnum Mentor og þegar kennarar hafa skrá inn viðtals bil þá birtist flís á Mentor þar sem þið getið skráð ykkur í viðtal.


Stjórnendur hvetja foreldra til að mæta í Lundarskóla í viðtölin því oft verða viðtölin persónulegri þegar fólk mætir á staðinn.


Engin hefðbundin kennsla fer fram þennan dag en vissulega verður Frístund opin og þeir nemendur sem verða þar fá mat.


Á viðtalsdeginum verða nemendur í 6. bekk með bakkelsi til sölu til fjáröflunar vegna fyrirhugaðrar skólaferðar að Reykjum á næsta ári. Umsjónarkennarar í 6.bekk sjá um skipulagið með sínum nemendum og í samráði við foreldra.


Ef eitthvað er óljóst varðandi viðtölin er foreldrum bent á að hafa samband við umsjónarkennara. Einnig hafa umsjónarkennarar samband við foreldra ef einhverjar breytingar eiga sér stað varðandi viðtölin og tímasetningar á þeim.

Foreldrafélagið

Foreldrafélag Lundarskóla hélt aðalfund félagsins fyrir skömmu. Á fundinum var kosið í nýja stjórn félagsin, farið yfir lög og reglugerðir ásamt því að upplýsa þá sem sátu fundinn um störf félagsins. Í stjórn foreldrafélagsins eru Harpa Hannesdóttir, Íris Elfa Moritz Aðalgeirsdóttir, Magnús Jón Hilmarsson, Nanna Ýr Arnarsdóttir, Valgerður Húnbogadóttir og Vilborg Hjörný Ívarsdóttir.


Stjórnendur Lundarskóla óska foreldrafélaginu velfarnaðar í starfi með von um gott samstarf.

Bekkjarfulltrúar

Fljótlega munu deildarstjórar eldri og yngri deildar boða bekkjarfulltrúa á fund með það í huga að efla samstarf á milli heimila skóla og einnig milli foreldra innan árganga. Þá verður m.a.farið yfir hlutverk og verkefni bekkjarfulltrúa. Við hvetjum bekkjarfulltrúa til að mæta á fundinn því allt samstarf er mikilvægt til að auka gæði náms og gera gott skólastarf enn betra.

Kær kveðja,

Maríanna, Fjóla Dögg og Helga Rún

skólastjórnendur Lundarskóla

Marianna Ragnarsdottir
Marianna is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close