eTwinning samvinna á Íslandi
Námskeið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara
eTwinning námskeið
Hér er á ferðinni námskeið fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara sem langar að taka þátt í stærsta starfssamfélagi kennara í Evrópu. eTwinning byggist á samstarfi kennara og nemenda sem í sameiningu vinna að einföldum rafrænum verkefnum, bæði innanlands og á milli landa.
eTwinning er fyrst og fremst samvinnuvettvangur til að deila hugmyndum, þekkingu og menningu sem og að efla samskipti og tengslanet kennara í Evrópu.
Á haustmisseri verða í boði tvö námskeið:
- Staðnámskeið laugardaginn 8. október kl. 10:00-13:30 og hins vegar
- Vefnámskeið laugardaginn 15. október kl. 10:00-13:30.
Dagskrá:
- Grunnpakki eTwinning (1 klst.)
- Kennsla á UT verkfæri (1 klst.)
- Hádegisverður (30 mín.)
- Vinna við eTwinning verkefni (1 klst.)
Hæfniviðmið
Eftir námskeiðið mun þátttakandi:
- Hafa innsýn inn í eTwinning starfssamfélagið
- Geta skráð sig og tekið þátt í verkefnum
- Geta tekið þátt í umræðu á Twinspace
- Geta leitað að verkefnum
- Þekkja eTwinning verkfærin
- Þekkja eTwinning gæðamerkin
- Þekkja og geta nýtt ýmis upplýsingatækni-verkfæri sem henta eTwinning verkefnum
STAÐNÁMSKEIÐ
Stund: Laugardagurinn 8. október 2016 kl. 10:00-13:30
Fyrir hvern: Kennara á öllum skólastigum
Staður: Kelduskóli - Korpa - Bakkastöðum 2, 112 Reykjavík
Verð: 3.000 kr. - Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og léttur hádegisverður.
Þátttakendur mæta með eigin tölvur
Skráning á staðnámskeiðið er á eftirfarandi slóð: https://goo.gl/forms/6HG4OGajzeKqsHbO2
VEFNÁMSKEIÐ
Stund: Laugardagurinn 15. október kl. 10:00-13:30
Fyrir hvern: Kennara allra skólastiga
Staður: Vefslóð verður send í tölvupósti 30 mín. fyrir útsendingu
Verð: 2.000 kr. - Innifalið í verði eru námskeiðsgögn
Laugardaginn 15. október 2016 kl. 10:00-13:30 verður bein útsending frá námskeiðinu og geta þátttakendur tekið þátt með eigin tækjum.
Skráning á vefnámskeiðið fer fram á eftirfarandi slóð: https://goo.gl/forms/hKIRFz16dBJ6OSSy2
Hvað er eTwinning?
Samstarfið er á milli tveggja eða fleiri skóla og fer aðallega fram rafrænt. Haldnir eru samstarfsfundir og þá er reynt að heimsækja flest þátttökulöndin. Núna geta tveir skólar á Íslandi unnið saman að verkefni. Sem er tilvalinn vettvangur til að byrja í eTwinning.
Reglulega eru haldnir viðburðir og námskeið víðsvegar um Evrópu og geta félagsmenn sótt þá sér að kostnaðarlausu.
Kennarar:
Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, upplýsingatæknikennari, verkefnastjóri hjá Kennslumiðstöð HÍ,
UT-torgi, SAMspil2015 og ráðgjafi hjá iNámskeið.is. bjarjons@gmail.com
Rakel G. Magnúsdóttir, stundakennari á sviði upplýsingatækni hjá Kelduskóla og Vesturbæjarskóla og ráðgjafi hjá iNámskeið.is. rakel@inamskeid.is
iNámskeið
Email: bjarjons@gmail.com
Website: http://www.inamskeid.is/
Phone: 8630535
Facebook: https://www.facebook.com/inamskeid/
Twitter: @iNamskeid