Vikupóstur 2-3 bekkur
7 - 14 febrúar 2020
Kæru foreldrar / forráðamenn
Vikurnar fljúga áfram og fer febrúar vel af stað. Nemendur lærðu um lífsferil fiðrilda í vikunni og höldum við áfram að vinna með það í næstu viku. Dagur stærðfræðinnar er í dag og unnum við val stærðfræðiverkefni í tilefni dagsins. Í gær unnu svo allir tölfræði könnun og settu upp í súlurit.
Samkvæmt skóladagatali á að vera útivistadagur í febrúar, Naustaskóli hefur aftur á móti fengið úthlutuðum degi í Hlíðarfjalli 17. mars þannig að útivistadagurinn frestast þangað til.
Mikil bleyta er úti þessa dagana og koma börnin mörg hver blaut inn úr frímínútum, því er mjög mikilvægt að hafa alltaf aukaföt í töskum barnanna.
Þar sem að flensutímabilið er byrjað af fullum krafti og margar óskir hafa verið um að nemendur sleppi útiveru eftir veikindi þá höfum við tekið þá ákvörðun að því miður getum við ekki orðið við þeim beiðnum þar sem að við höfum ekki mannskap í að vakta þau börn sem ekki fara út í frímínútur. Viljum við því benda á að sama regla gildir í grunnskólanum eins og í leikskólanum að barn er ekki tilbúið til að mæta í skólann eftir veikindi nema að geta tekið þátt í útiveru.
Við viljum minna á að þeir sem kjósa það að koma með nesti að heiman í skólann að mikilvægt er að nestið sé hollt og gott. Sykruð jógúrt, sætabrauð og sykraðir drykkir er ekki æskileg næring fyrir börnin ykkar sem þurfa að einbeita sér og halda sér að verki.
Bestu kveðjur og góða helgi
Teymið í 2-3 bekk
Emilía, Silvía, Vala, Sigga, Hulda, Harpa, Karen og Erla