DJÚPAVOGSSKÓLI
FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI
MARS
- 8.-10.mars - BÚIÐ AÐ AFLÝSA SAMRÆMDUM PRÓFUM
- 11.mars - Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar kemur í skólaheimsókn til okkar.
- 14.mars - Dagur stærðfræðinnar.
- 15.mars - Klippimyndasmiðja á vegum bókasafna í Múlaþingi (nánar auglýst síðar).
- 16.mars - Stóra upplestrarkeppnin haldin í Grunnskóla Hornafjarðar.
- 22.mars - 1.-4.bekkur sýnir árshátíðar verkið sitt (Lion king).
- 23.mars - Árshátíðar undirbúningur hjá 5.-10.bekk.
- 24.mars - 5.-10.bekkur sýnir árshátíðar verkið sitt (Lion king).
- 25.mars - Árshátíðar frágangur.
NÆSTA VIKA
Mánudagur 7.mars
- Mætum hress eftir gott helgarfrí.
Þriðjudagur 8.mars
- 14:40 Teymisfundur.
Miðvikudagur 9.mars
- Góður dagur fyrir heimalestur.
Fimmtudagur 10.mars
- 14:40 Fagfundur.
Föstudagur 11.mars
- Skólaheimsókn frá starfsfólki Grunnskóla Hornafjarðar.
- Förum í gott helgarfrí.
MATSEÐILL NÆSTU VIKU
HELLINGUR AÐ GERAST HJÁ OKKUR
UPPLESTRARKEPPNIN
Nemendur í 7.bekk kepptu í upplestri á mánudaginn og stóðu sig frábærlega, öll sem eitt.
Dómnefnd valdi 6 nemendur sem verða fulltrúar Djúpavogsskóla þegar við keppum við Grunnskóla Hornafjarðar 16.mars, á Höfn.
Þetta eru:
Anna Margrét Alfreðsdóttir
Rökkvi Pálmason
Freydís Rán Jónsdóttir
Andrea Hanna Guðjónsdóttir
Óðinn Mikael Óðinsson
Stefán Valur Steinþórsson
Við óskum þeim innilega til hamingju.
BOLLUDAGUR HJÁ 5.BEKK
ÖSKUDAGUR
Eins og alltaf er mikið stuð á Öskudaginn og hér má sjá skemmtilegar myndir frá því.
Það verður ýmislegt að gerast hjá okkur í næstu viku, meira af því síðar...
Bestu kveðjur til ykkar.
Starfsfólk Djúpavogsskóla.