
DJÚPAVOGSSKÓLI
FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI
MARS
- 14.mars - Dagur stærðfræðinnar.
- 15.mars - Klippimyndasmiðja á vegum bókasafna í Múlaþingi frá 16:00 - 18:00
- 16.mars - Stóra upplestrarkeppnin haldin í Grunnskóla Hornafjarðar.
- 17.mars - Kynning frá VA fyrir verðandi menntaskólanemendur.
- 22.mars - 1.-4.bekkur sýnir árshátíðar verkið sitt Konungur ljónanna kl. 18:00 á Hótel Framtíð.
- 23.mars - Árshátíðar undirbúningur hjá 5.-10.bekk.
- 24.mars - 5.-10.bekkur sýnir árshátíðar verkið sitt Konungur ljónanna kl. 18:00 á Hótel Framtíð.
- 25.mars - Árshátíðar frágangur.
NÆSTA VIKA
Mánudagur 14.mars
- Vonum að sem flestir verði lausir við veiruna og mæti hressir.
- Dagur stærðfræðinnar.
Þriðjudagur 15.mars
- 15:00-16:00 Starfsmannafundur - Athugið að frístund (viðvera á Helgafelli) lokar kl. 14:45
Miðvikudagur 16.mars
- Góður dagur til að keppa í upplestri.
- 14:00 Upplestrarkeppnin haldin á Höfn.
Fimmtudagur 17.mars
- 14:40 Teymis/fagfundir
- Allt á fullu í árshátíðar-undirbúningi.
Föstudagur 18.mars
- Förum í gott helgarfrí.
MATSEÐILL NÆSTU VIKU
ÁHUGAVERÐ VIKA AÐ BAKI
Við svona aðstæður er ekki hægt að skipuleggja neitt, staðan er bara tekin á töflufundi rétt fyrir 8:00 á hverjum morgni og allir hjálpast að við að gera skipulag fyrir daginn.
Í Djúpavogsskóla er einstaklega lausnarmiðaður starfsmannahópur og alltaf stutt í húmorinn. Það hefur verið frábært að sjá hvernig allir leggja sitt af mörkunum. Hjá okkur eru nemar í vettvangsnámi sem hafa líka stigið inn í kennslu. Þetta er alveg til fyrirmyndar.
Á hverju hausti gera nemendur bekkjarsáttmála og starfsmenn gera starfsmannasáttmála. Gildin okkar hugrekki - virðing - samvinna eru leiðarljósin okkar.
Starfsmannasáttmálinn í ár er fallegt veggspjald sem er til á íslensku, pólsku og ensku.
Þetta eru góð gildi og gott að hafa að leiðarljósi við svona aðstæður.
GRUNNSKÓLI HORNAFJARÐAR Í HEIMSÓKN
Vegna aðstæðna vildum við ekki auka á álagið, Obba fór því til þeirra og sagði þeim allt um Djúpavogsskóla og Cittaslow.
Svona er þetta bara þessa dagana, við reynum að gera okkar besta hverju sinni.
ÞRÁTT FYRIR VEIRU ER ALLT AÐ GERAST
Þrátt fyrir að veiran sé að herja á okkur þá gengur árshátíðar undirbúningur vel, nemendur eru að hanna búninga og búa til grímur í list- og verkgreinatímum.
Andrea og Berglind eru byrjaðar að taka nemendur út í auka leik- og söngtíma.
Í næstu viku þá er stefnan að halda áfram með samskonar skipulag.
Nemendur fylgja í raun sinni stundarskrá en þurfa að gera ráð fyrir því að vera teknir út úr tíma þegar verið er að æfa ákveðin atriði.
Eins og við vitum þá er mjög erfitt að skipuleggja eitthvað þessa dagana.
Við stefnum samt á það að sýna Konung ljónanna á Hótel framtíð samkvæmt skóladagatali en gerum okkur grein fyrir því að allt þarf að ganga upp.
Vonum það besta :)
Meðfylgjandi eru skemmtilegar myndir frá s.l. viku.
KLIPPIMYNDASMIÐJA Á BÓKASAFNINU Í NÆSTU VIKU
Það þarf ekki að skrá sig, það er nóg að mæta, foreldrar hvattir til að mæta með börnunum og taka þátt.
UPPLESTRARKEPPNIN Á HÖFN
Stóra upplestrarkeppnin fer fram í Grunnskóla Hornafjarðar á miðvikudaginn í næstu viku.
Þar ætlar góður hópur úr Djúpavogsskóla að mæta. Þetta eru 6 nemendur úr 7.bekk sem keppa í upplestri, stuðningshópur sem saman stendur af samnemendum úr 6. - 7.bekk og nokkrum starfsmönnum skólans.
Það er hefð fyrir því að kynnir keppninar sé sigurverarinn frá því í fyrra og hann kemur úr okkar hópi.
Nú er bara að vona að allt gangi upp og allir verði hressir.
Við sýnum ykkur myndir frá því í næstu viku.
Það var fámennt á yngstastigi í dag en allir voru hressir og senda ykkur kveðjur :)
Katrín Salka var fulltrúi nemenda í 4.bekk í skólanum í dag :)
Það er á svona degi sem það kemur sér vel að vera í samkennslu, hún var í góðum félagsskap nemenda í 1.-3.bekk.
Takk fyrir að vinna þetta verkefni vel með okkur, við sjáum hvað næsta vika býður okkur upp á.
Bestu kveðjur til ykkar og góða helgi.
Starfsfólk Djúpavogsskóla