Fréttabréf Engidalsskóla maí 2024
Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
Fréttabréf Engidalsskóla
Kæru foreldrar/forsjáraðilar.
Maí fréttabréfið er seint á ferðinni en fyrirferðamest í því eru skemmtilegar myndir úr skólastarfinu. Tveir nemendadagar eru eftir af skólaárinu, íþróttadagur á morgun og skólaslit á föstudaginn. Reyndar klárar 7. bekkur báða þessa nemenda daga á fimmtudaginn þar sem þeirra skólaslit verða síðdegis á morgun. Við erum farin á fullt að skipuleggja næsta skólaár en skólasetning og foreldrasamráð verður 23. ágúst og skóli hefst svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn 26. ágúst kl. 8:20. Á nýrri heimasíðu skólans er að finna skóladagatal næsta skólaárs. Við gerum ráð fyrir að leggja fyrir skólaráð og svo fræðsluráð tillögu að breytingu á einum starfsdegi í september og gerum ráð fyrir að fá það samþykkt. Þetta snýst um að skipulagsdagur sem er settur fimmtudaginn 19. september verði færður fram til föstudagsins 13. septembers. Ástæða þessarar breytingar er að stór hluti kennara er skráð á læsisráðstefnu hjá Háskólanum á Akureyri 13. september.
Við vonum að allir njóti sumarsins vel en getum ekki sleppt því að minna á mikilvægi þess að viðhalda þeirri færni sem náðst hefur í lesfimi í vetur, hér gildir að æfingin skapar meistarann. Nýjustu niðustöður lesfimiprófanna segja okkur að allir árgangar nema tveir eru við eða yfir landsmeðaltali og annar þessa tveggja er rétt undir því.
Eitt af okkar stóru markmiðum er að auka vellíðan nemenda og í síðustu nemendakönnun Skólapúlsins erum við yfir landsmeðaltali líkt og síðasta vor. Kaflinn Líðan og heilsa kemur ágætlega út utan tíðni eineltis sem þó hefur lækkað mikið. Við viljum ekkert einelti og það á öllum að geta liðið vel en til þess þurfum við öll að vinna vel saman. Leiðinleg framkoma og einelti hættir ekki klukkan tvö á daginn og tekur sér ekki frí um helgar.Við viljum leggja áherslu á það við foreldra/forsjáraðila að ef þeir telji að barn þeirra verði fyrir einelti að tilkynna það formlega á eyðublaði sem er að finna á heimsíðunni. Ánægjulegt er að sjá að nemendur hafa orðið meiri trú á eigin vinnubrögðum og námsgetu og eru komin rétt yfir landsmeðaltal þar. Ánægja af lestri og náttúrufræði hefur hinsvegar farið niður í vetur og munum við vinna markvisst með það á næsta skólaári.
Við þökum kærlega fyrir samstarfið á skólaárinu sem er að ljúka og vonum að allir njóti sumarsins.
Með bestu kveðju,
Skólastjórnendur Engidalsskóla.
Skólaslit 6. og 7. júní
Skólaslit í Engidalsskóla verða 6. og 7. júní nk. Athöfnin verður þrískipt og eru foreldrar/forsjáraðilar velkomin með nemendum. Byrjað verður á stuttu ávarpi skólastjóra og í framhaldi af því tónlistaratriði í flutningi nemenda. Eftir tónlistaratriðið munu umsjónarkennarar afhenda vitnisburð og að lokum munu yngri nemendur syngja saman lag. Við lítum á þetta sem einn af hátíðisdögum skólaársins og hvetjum nemendur til að mæta prúðbúin á skólaslitin.
6. júní
7. bekkur kl. 17:00
7. júní
1.-3. bekkur kl. 9:00
4.-6. bekkur kl. 10:00
Fréttir úr Álfakoti
Mánudaginn 27.maí byrjuðu tveir drengir frá vinnuskólanum hjá okkur og hafa krakkarnir tekið mjög vel á móti þeim. Nú fer önninni í Álfakoti senn að ljúka og erum við farin að finna fyrir tilhlökkun hjá börnunum að komast í sumarfrí. Það fyllist hratt hjá okkur á sumarnámskeiðin sem verða 10.-28.júní. Það er orðið fullt fyrstu vikuna en hægt er að skrá á biðlista og einnig er laust hálfan dag. Það eru enn nokkur laus pláss fyrir viku tvö og þrjú og hvet ég öll sem hafa hug á að skrá sitt barn á námskeið að drífa í því, við lofum frábærri og skemmtilegri dagskrá!
Annars þakka ég fyrir önnina og sömuleiðis sendi ég kveðju til þeirra barna sem eru að kveðja frístund og fara yfir á miðstigið.
Kær kveðja,
Magnea
Lesfimiátak í maí
Niðurstöður úr lesfimiprói í maí
Nýsköpunarsetrið við Lækinn
4.bekkur heimsótti Nýsköpunarsetrið á dögunum. Setrið leggur upp með að vera skapandi samfélag lausna, þróunar og tækni.
Hópurinn fékk fyrst kynningu á hver hugmyndinni á bak við þrautir er og spurningum á borð við hvað þær eru og hvort ein lausn henti fyrir alla varpað upp.
Í framhaldi hófst ótrúlega skemmtileg og skapandi vinna þar sem hóparnir fengu það verkefni að hanna vatnsrennibraut með tiltækum, verðlausum efnivið.
Það voru settar kröfur um ákveðna hluti sem sköpunarverkið þyrfti að innihalda.
Áhugavert var að sjá hve ótrúlega fjölbreyttar og ólíkar rennibrautir litu dagsins ljós, en uppfylltu þó allar sömu grunn kröfur.
Virkilega lærdómsrík ferð sem vakti mikla lukku!
Umhverfisráð Engidalsskóla
2 fulltrúar úr umhverfisráði tóku að sér að skrifa bréf til bæjarstjórans þar sem þau voru að benda á að það vantar ruslafötur á göngustíga í kringum skólann. Bréfið er farið af stað, verður fróðlegt að vita hvort þau fái svar.
Fréttir úr Álfakoti
Dalurinn
Skýr mörk Engidalsskóla
Í Engidalsskóla eru ekki skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta. Minniháttar atvik leysum við á svokölluðu sáttarborði.
Í Engidalsskóla viljum við:
Ekkert ofbeldi hvorki líkamlegt né andlegt
Engin barefli né önnur vopn
Engin ávana- eða fíkniefni þar með talið áfengi, tóbak og rafrettur
Engar alvarlegar ögranir eða hótanir
Engin skemmdarverk
Enga áhættuhegðun
Engan þjófnað
Verkefni nemenda úr áhugasviði
Verkefni nemenda úr smiðjum
Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka
Engidalsskóli
Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433