Mega Menntabúðir
Samvinna og samþætting
Miðvikudaginn 28. september 2016 kl. 16:15-18:15
Fyrstu menntabúðir haustmisseris verða Mega Menntabúðir en þar munu sameinast kraftar torga Menntamiðju, Erasmus+ og eTwinning.
Þær verða haldnar miðvikudaginn 28. september
kl. 16:15-18:15 í stofum K-205-208 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð.
Þemað verður samvinna og samþætting gjarnan í tengslum við notkun upplýsingatækni í námi og kennslu.
Skráning fer fram á eftirfarandi slóð: https://goo.gl/forms/Bp4GMm21m4lsMpoF2
Menntabúðir (e. EduCamp) er nýstárleg aðferð til starfsþróunar sem við höfum aðlagað að okkar aðstæðum og haldið undanfarin 3 ár. Aðferðin byggir á óformlegri jafningjafræðslu sem stuðlar að aukinni umræðu á milli skólastiga sem og eflingu tengslanets kennara. Þátttakendur miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum. Menntabúðir eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og kennaranemum. (Sjá myndskeið eftir Guðbjörgu Bjarnadóttur neðar á síðunni).
Menntabúðum er skipt upp í tvo 40 mínútna hluta og í hvorum hluta eru nokkrar stöðvar settar upp með mismunandi kynningum. Á stöðvunum fara fram stuttar kynningar, kynnendur svara spurningum og spjalla við þátttakendur.
Aðrir þátttakendur ganga á milli stöðva og taka þátt með því að spyrja spurninga og spjalla.
Fyrir utan skipulagðar kynningar geta þátttakendur mætt með spurningar eða "vandamál" sem þeir vilja fá aðstoð við að leysa.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með framlag í búðirnar. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námskrárvinnu, varpa fram spurningu eða koma með eitthvað málefni sem þarfnast lausnar.
Þátttakendur eru hvattir til að mæta með fartæki (fartölvu, spjaldtölvu, snjallsíma...) með sér, hægt verður að tengjast neti. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku.
Dagskráin er enn í mótun og birtist hér fyrir neðan.
- eTwinning kynning á verðlaunaverkefnum
- Kynning á KeyWe smáforritinu
- Creating games using Scratch
Í lokin mun landskrifstofa eTwinning á Íslandi veita verðlaun fyrir framúrskarandi verkefni unnin á síðasta skólaári.
Myndskeiðið hér fyrir neðan er tekið í Menntabúðum
Samstarfsaðilar: UT-torg, Tungumálatorg, Sérkennslutorg, Náttúrutorg, Stærðfræðitorg, Reykjavíkurborg, Menntamiðja og Rannum.
Mega Menntabúðir
Wednesday, Sep 28, 2016, 04:15 PM
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, Stakkahlíð, Reykjavik, Capital Region, Iceland
UT-torg - Menntamiðja
Email: bjarjons@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is
Phone: 8630535
Facebook: https://www.facebook.com/pages/UT-torg/173085796204552?ref=bookmarks
Twitter: @UT_torg